| Ef heilinn í okkur væri svo einfaldur að við skildum hvað þar fer fram, værum við svo heimsk að við skildum það ekki | |
|
þriðjudagur, nóvember 14, 2006 I don´t believe it!!!! Ég ætlaði að fara að blogga fyrir svona viku en fattaði að ég var búin að steingleyma lykilorðinu! Loksins þegar ég hafði eitthvað að segja gat ég bara ekki munað helvítis lykilorðið. Og ég reyndi allt! Öll orð sem ég hef nokkurn tíman haft gaman af, bæði með og án allra tölustafa sem ég hef haft gaman af, ýmist á undan eða eftir orðunum. Ég var að brjálast. Svo ákvað ég að gera aðra tilraun núna áðan. Og viti menn! Þetta fáránlega asnalega orð spratt upp í hausinn á mér, svo asnalegt að mig langar að segja ykkur frá því! (Ef það les þetta þá einhver eftir allan þennan tíma..) En ég ætla ekki að gera það. Ég var að hugsa um að blogga um airwaves en langt er um liðið. Kannski kreisti ég eitthvað saman. kjelling kvartar → sunnudagur, júlí 23, 2006 Hver sá sem reynir að halda því fram að blogg sé annað en tækifæri til að tala um sjálfan sig og fá aðra til að tala um sig er kjáni. Já. Það er rétt. Maður reynir að miðla ýmsu, notfæra sér stöðu sína sem bloggari til að "correcta" fólk "politically", fá fólk til að skrifa undir lista, svo reyni ég, þó það sé oft ómeðvitað, að troða uppá ykkur, mína kæru gesti, femínískum, anarkískum og umhverfisverndunarhugmyndum. Og öllum fjandanum. En þó maður meini vel og tali um hugmyndir og skoðanir, þá eru þær samt alltaf manns eigin. Afverpi hugans, tilfinninga, skaps.. Þar af leiðandi er er bara ekki hægt að skrifa um það sem manni finnst án þess að vera að tala um sjálfan sig. Það gladdi mig mikið hvað margir urðu fyrir vonbrigðum með Bobby. Fólk fór til Danaveldis með stóra drauminn í rassvasanum, hann var alveg að fara að rætast, loksins fæ ég að sjá herra Bob, the legend, hinn mikla listamann, shakespear okkar tíma. Eða eitthvað... Síðan sökkaði hann bara víst. Það gaf mér birtu í hjartað mitt að draumar fólks sem ég þekki hefðu verið drepnir á augnabliki. Vegna þess að ég gat ekki verið á staðnum. Er maður ekki illur. En hvað með það. Ég ætla ekki að reyna að fá ykkur til að skrifa undir undirskriftarlista í dag heldur til að skrifa um mig! Ó já, hér er ég, um mig, frá mér, til mín. Engin afneitun. Þó þetta sé allt eitthvað -um þig -um okkur.. - þá er þetta bara allt um mig. Ég hef ekki fengið snögglegt æði fyrir sjálfri mér, ég var bara að pæla í fólki sem ég hef þekkt og heldur virkilega að rassgatið á því sé miðja alheimsins. Og veit ekki einu sinni hvað það er ógeðslega leiðinlegt. Ó mæ god, það er svo slæmt, svo skelfilega óþolandi. Ég er svo fegin að vera laus við það.. Svo fegin sko! Þannig að ég held að það sé betra að vera meðvitaður um það þegar maður blaðrar um sjálfan sig... Svo hér er það. Segið mér: 1. Eitthvað handahófskennt um þig 2. Eitthvað lag eða mynd sem tengist okkur 3. Fyrstu skýru minningu þína af mér 4. Eitthvað sem bara við skiljum 5. Einhverja spurningu sem ég hef lengi viljað fá svarið við Þetta er hluti af þessu asnalegu kedjudraslrusli, sem er lúmskt skemmtilegt. ![]() Hversu fokking ógeðslegt er þetta... Peli með beljutúttum! Hvaða barn vill sjúga beljuspena?! Fokk. Sick world. En kannski er þetta ekki fyrir börnin heldur fyrir einmanna karlmenn og bjórinn þeirra. kjelling kvartar → þriðjudagur, júní 27, 2006 Marissa Cooper bara komin í dópið... Uss og fussumsvei, eins og hún hafi ekki verið nógu ógeðslega óþolandi fyrir, hvernig verður hún núna!Ef hún væri ekki svona falleg þá væri ég hætt að horfa á þættina vegna þess hvað hún er fokking leiðinleg, en hún jafnar þetta út greyið.. Getur hún ekki bara hætt að væla yfir öllum andskotanum sem henni dettur í hug og farið að haga sér! Hætta að vera svona plebbi! ,,Oh, aumingja ég, ég er svo rík og falleg að ég get ekki meir, oh, og svo bý ég á geðveikt ömurlegum stað, og ég á svo erfitt! En annars ætti ég ekkert að vera að skammast út í hana greyið, hún semur sig ekki sjálf...Ég er bara bitur og fúl því mig langar að vera þarna: Hróarskelda...! =(Búhúhú.. My master is there.. Mistör Bobbeih! Ég trúi því ekki að hann verði þarna! Bless og góða nótt, ég ætla í afneitun og verð þar ef þið þurfið að ná í mig!
kjelling kvartar → föstudagur, júní 02, 2006 Eftir mikilfenglega útskrift í kirkjunni miklu barði rigningin mig og mína í heimahús. Um kvöldmatarleitið var síðan haldið í Kópavoginn á fund hinna kínversku. Pabbi bauð okkur systkinunum sem sagt út að borða í tilefni dagsins og Kínahofið varð fyrir valinu. Ekki var það slæmt. Stórir góðir réttir, kínversk tónlist, kerti, bjór og skemmtileg og tja.. óvenjuleg þjónusta, mér að skapi. Prýðilegt, prýðilegt. ![]() Ég ákvað að hitta félaga minn, bæjinn, um kvöldið en hann er útsmoginn náungi sem platar úr manni pening og hellir í mann verðandi þynku þegar maður hittir hann. En ég hitti hann samt nokkuð oft. He´s my bitch. Það sem var eftir af nóttunni var nokkuð athyglisvert. Ég fékk meðal annars að heyra; Að ég hefði stórkostlega fallega áru. Tugi hamingjuóska frá ókunnugum. Ljótustu rödd í heimi. Að ég væri ein af milljón. Að ég ætti að drullast í háskólann. Að stúdentsskírteini væri einskis virði. Að ég þyrfti að tala um hluti. Að ég yrði heimsþekkt. Það var skrítið að fá svona mikla athygli út á höfuðfat. En þetta var allt saman gott og blessað, bara ef þessi dagur hefði verið tveir sólarhringar, ekki einn. kjelling kvartar → sunnudagur, maí 14, 2006 Í "guðanna bænum" skoðið þennan link Hversu skemmtilegt verður sumarið ef við sjáum þessi helvítis svín ráðast inn í fleiri lönd. Chjékk ittt!! ![]() Þetta er nú eiginlega móðgun fyrir apann... kjelling kvartar → þriðjudagur, maí 02, 2006 ![]() Í kvöld borðaði ég pizzu. Það er nú svo sem ekki svo merkilegt í sjálfu sér. Pizza er ekki óalgengur matur. Ekki hjá menntaskólanemum í próflestrarfríum. Ekki hjá þeim sem láta gott bragð sig meiru máli skipta en smá bumbu og bingóhandleggi. EN FYRR MÁ NÚ VERA!!! Fjögur kvöld í röð, já fjögur kvöld í röð, ég segi það satt! Í kvöld var FJÓRÐA skiptið í röð sem ég borðaði pizzu.. ![]() Ég get ekki sagt að aumingja bjórinn hafi sloppið frá mér heldur undanfarið.. Freistingar, freistingar... Ummm...
kjelling kvartar → þriðjudagur, apríl 25, 2006 Vá hvað þið söknuðuð mín! ![]() Ég hef nákvæmlega ekkert að segja, skólinn er að drepa mig. Mér finnst að síðustu dagarnir mínir í skólann (2 dagar eftir) ættu að vera þeir allra ánægjulegustu frá upphafi. En þeir eru það ekki. Verkefnin eru að kæfa mig. Ökk.. En ó, ég örvænti ekki því á föstudaginn er dimission!! Ybbie jei... ![]() Ég efast um að það verði einhver hoppukastali á dimission en það væri samt gaman... kjelling kvartar → |
Alt mugligt!: Akkurru, akkurru? Peace Homminn Boðorðin Fyrir magann... Fyrir gleðina Hobbidi? Amnesty Kvennó pennó múmín Vinir mínir úr bransanum: Janis Bobbi PJ Nikki Kjúrarar Eva Kinkarar Jeff Hr. Neil Smithsar Fólk sem er að herma eftir mér: Ásrún afríkubrún Beggi skeggi Benni Gröndal sköndal Eyrún ekki brún Hanna Lísa skvísa Kristín Lilja að þylja Lilja Hrönn með tönn Mæ speis, the pleis Orða borða Pissi-Krissi Systir Hrönn hvít sem fönn Nýskeð og skrifað: I don´t believe it!!!! Ég ætlaði að fara að blogg... Hver sá sem reynir að halda því fram að blogg sé a... Marissa Cooper bara komin í dópið... Uss og fussu... Eftir mikilfenglega útskrift í kirkjunni miklu bar... Í "guðanna bænum" skoðið þennan link Hversu skemmt... Í kvöld borðaði ég pizzu. Það er nú svo sem ekki ... Vá hvað þið söknuðuð mín! Ég hef nákvæmlega ekker... Þetta finnst mér soldið spes mynd. Hann ber sig s... Ég hef fengið bestu afmælisgjafir í heimi en hef e... Já, ég er víst orðin hálffertug. Hversu frábært er... Gamall skítur: janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 nóvember 2006 Hönnun o.fl. Liljus king i n c. blogskins blogger |