| Ef heilinn í okkur væri svo einfaldur að við skildum hvað þar fer fram, værum við svo heimsk að við skildum það ekki | |
|
sunnudagur, júlí 23, 2006 Hver sá sem reynir að halda því fram að blogg sé annað en tækifæri til að tala um sjálfan sig og fá aðra til að tala um sig er kjáni. Já. Það er rétt. Maður reynir að miðla ýmsu, notfæra sér stöðu sína sem bloggari til að "correcta" fólk "politically", fá fólk til að skrifa undir lista, svo reyni ég, þó það sé oft ómeðvitað, að troða uppá ykkur, mína kæru gesti, femínískum, anarkískum og umhverfisverndunarhugmyndum. Og öllum fjandanum. En þó maður meini vel og tali um hugmyndir og skoðanir, þá eru þær samt alltaf manns eigin. Afverpi hugans, tilfinninga, skaps.. Þar af leiðandi er er bara ekki hægt að skrifa um það sem manni finnst án þess að vera að tala um sjálfan sig. Það gladdi mig mikið hvað margir urðu fyrir vonbrigðum með Bobby. Fólk fór til Danaveldis með stóra drauminn í rassvasanum, hann var alveg að fara að rætast, loksins fæ ég að sjá herra Bob, the legend, hinn mikla listamann, shakespear okkar tíma. Eða eitthvað... Síðan sökkaði hann bara víst. Það gaf mér birtu í hjartað mitt að draumar fólks sem ég þekki hefðu verið drepnir á augnabliki. Vegna þess að ég gat ekki verið á staðnum. Er maður ekki illur. En hvað með það. Ég ætla ekki að reyna að fá ykkur til að skrifa undir undirskriftarlista í dag heldur til að skrifa um mig! Ó já, hér er ég, um mig, frá mér, til mín. Engin afneitun. Þó þetta sé allt eitthvað -um þig -um okkur.. - þá er þetta bara allt um mig. Ég hef ekki fengið snögglegt æði fyrir sjálfri mér, ég var bara að pæla í fólki sem ég hef þekkt og heldur virkilega að rassgatið á því sé miðja alheimsins. Og veit ekki einu sinni hvað það er ógeðslega leiðinlegt. Ó mæ god, það er svo slæmt, svo skelfilega óþolandi. Ég er svo fegin að vera laus við það.. Svo fegin sko! Þannig að ég held að það sé betra að vera meðvitaður um það þegar maður blaðrar um sjálfan sig... Svo hér er það. Segið mér: 1. Eitthvað handahófskennt um þig 2. Eitthvað lag eða mynd sem tengist okkur 3. Fyrstu skýru minningu þína af mér 4. Eitthvað sem bara við skiljum 5. Einhverja spurningu sem ég hef lengi viljað fá svarið við Þetta er hluti af þessu asnalegu kedjudraslrusli, sem er lúmskt skemmtilegt. ![]() Hversu fokking ógeðslegt er þetta... Peli með beljutúttum! Hvaða barn vill sjúga beljuspena?! Fokk. Sick world. En kannski er þetta ekki fyrir börnin heldur fyrir einmanna karlmenn og bjórinn þeirra. kjelling kvartar → |
Alt mugligt!: Akkurru, akkurru? Peace Homminn Boðorðin Fyrir magann... Fyrir gleðina Hobbidi? Amnesty Kvennó pennó múmín Vinir mínir úr bransanum: Janis Bobbi PJ Nikki Kjúrarar Eva Kinkarar Jeff Hr. Neil Smithsar Fólk sem er að herma eftir mér: Ásrún afríkubrún Beggi skeggi Benni Gröndal sköndal Eyrún ekki brún Hanna Lísa skvísa Kristín Lilja að þylja Lilja Hrönn með tönn Mæ speis, the pleis Orða borða Pissi-Krissi Systir Hrönn hvít sem fönn Nýskeð og skrifað: Marissa Cooper bara komin í dópið... Uss og fussu... Eftir mikilfenglega útskrift í kirkjunni miklu bar... Í "guðanna bænum" skoðið þennan link Hversu skemmt... Í kvöld borðaði ég pizzu. Það er nú svo sem ekki ... Vá hvað þið söknuðuð mín! Ég hef nákvæmlega ekker... Þetta finnst mér soldið spes mynd. Hann ber sig s... Ég hef fengið bestu afmælisgjafir í heimi en hef e... Já, ég er víst orðin hálffertug. Hversu frábært er... Yfirleitt er ég langt eftir á öðru fólki með hluti... Alltaf þegar ég á að vera að gera eitthvað, geri é... Gamall skítur: janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 nóvember 2006 Hönnun o.fl. Liljus king i n c. blogskins blogger |